Færsluflokkur: Bloggar
Fluttur...
11.3.2010 | 09:24
Haukurinn hefur sökum anna ekki verið nægilega duglegur í bloggskrifum, en þar eð lokaverkefninu hefur verið skilað og próf er yfirstaðið og staðist þá er hlaupið kapp í kinnar Hauksins og hann hyggst ráða bót á bloggleysinu.
Hinsvegar, þar eð ég er kominn með nóg af morgunblaðsblogginu - þar spila inn margar ástæður - þá hef ég flutt mig um set yfir á wordpress.com.
Því er hin nýja bloggslóð eftirfarandi: http://haukurinnst.wordpress.com/
Vona að þetta eigi eftir að gagnast lesendum í framtíðinni.
Með kveðju,Haukurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"I still have goosebumps from when Klingsor summoned Kundry with a terrible cry, and ordered her to seduce Parsifal: 'Ha! Er ist schön, der Knabe!'"
6.1.2009 | 09:56
Haukurinn heldur áfram einsetu sinni og útlegðarmótmælum. Kannski það sé barasta ágætt, þ.e. að venja sig af endalausum moggabloggum. Kannski var þessi breyting 'bankahrunið í bloggheimum'. Allavega Haukurinn ætlar ennfremur að halda áfram að fleygja hér inn jútjúb hlekkjum eins og hann eigi lífið að leysa.
Næstir á dagskrá eru finnsku þungmálmstónlistarmennirnir í Apocalyptica sem eru klassískt tónlistarmenntaðir og spila eingöngu á selló. Þeir hafa í gegnum tíðina sérhæft sig að nokkru leyti í því að útsetja tónlist snillinganna í Metallica nánast einvörðungu fyrir sellóin sín - þó svo þeir hafi í seinni tíð bætt við áslátturshljóðfæraleikara þ.e. trommara. Verði lesendum að góðu.
Fight Fire with Fire - Metallica
Nothing Else Matters - Metallica
One - Metallica
Fade to black - Metallica
Master of puppets - Metallica
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"That's why I'm gonna let you go. I'm gonna give you to the count of three to get your lousy, lyin', low-down, four flushing carcass out my door.."
19.12.2008 | 12:27
Ætli við sem íbúar landsins getum farið fram á álíka tilkynningu frá okkar nágrannaríkjum? Það er, þar sem farið væri fram á það að Davíð Oddson, Geir H. Haarde, o.fl. færu samstundis frá völdum þar eð þessir aðilar bæru ábyrgð á þeirri skegg- og skálmöld sem nú ríkir á Íslandi.
Það væri allavega endanleg staðfesting á stöðu landsins, einkum gagnvart öðrum bananalýðveldum.
|
Norrænu ríkin vilja Mugabe frá |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
"'All you need is love', John Lennon, smart man, shot in the back very sad...of course he also said 'I'm the walrus' so what do I know...."
18.12.2008 | 14:17
Jæja. Mikið er gaman að sjá hvað íslenskir menntaskólanemendur hafa margt nýtilegt að gera í jólafríinu sínu. Mótmæli versus skrílslæti? Vissulega voru það aðeins nokkrir svartir sauðir, með svartar grímur að vanda, sem létu undan skemmdarfýsn sinni, og brutu rúður með offorsi, en er virkilega hægt að halda því fram að þessi skemmdarverk hafi enga tengingu haft við hina einstaklingana sem tóku þátt í mótmælunum? Er sem sagt hægt að firra sig ábyrgð með því að kenna nokkrum fáum um? Sem sagt, það er enginn sem stýrir og stjórnar hópnum? Því er enginn sem ber ábyrgð? Það hjá hópi fólks sem fer um víðan völl og krefst þess að aðrir beri ábyrgð á gjörðum sínum. Ja hérna hér....
Enn halda mótmælendur áfram grímubúningaleik sínum og finnst mér það verr og miður. Ég hef heyrt röksemdirnar þess efnis, að hér sé fólk að fá umheiminn til að einblína á málstaðinn ekki persónur. Þær finnast mér veikar á velli. Fólk felur sig vegna þess að það vill ekki standa persónulega að baki eigin málstað. Það er heigulsháttur. Svona í framhjáhlaupi, þá hef ég reyndar lesið margar athugasemdir á ýmsum bloggvefjum þar sem stuðningsmenn þessara aktivista hrauna yfir bloggara sem mótmæla málstað þeirra og rita undir leyninafni eða pennanafni. Hver er munurinn?
Haukurinn er þá væntanlega líka heigull. En hann ber þá væntanlega heldur enga ábyrgð á neinu sem hann gerir eða segir. Nákvæmlega eins og grímuklæddir skemmdarvargar.
P.s. Hér ber að taka fram að Haukurinn styður heilshugar við mótmælin, hvort sem er þau sem fram fara hvern laugardag á Austurvelli eða þau sem fara fram í minni hópum á vettvöngum vítt um borgina. En hann getur engan veginn, samvisku sinnar vegna, stutt skemmdarverk og ofbeldi.
|
Mótmæli halda áfram |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Haukurinn hefur skrifað um það áður að ef einhvern tímann var þörf þá er nú nauðsyn. Flest okkar hafa möguleika á að láta eitthvað af hendi til styrktar þessum hjálparstofnunum. Það þarf ekki að vera reiðinnar býsn af fjármunum, því eins og við vitum þá gerir margt smátt eitt stórt.
Haukurinn hefur sjálfur óskað eftir því að hans nánustu styrki frekar þetta góða fólk með því að leggja inn á þessar hjálparstofnanir fremur en að auka á hans ört stækkandi hrúgu af neysluvarningi.
Þurfum við virkilega á einum fleiri geisladisknum, konfektkassanum, o.s.frv. að halda?
|
Fólk grætur fyrir framan okkur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Fallinn með fjóra komma níu..."
8.12.2008 | 10:54
Haukurinn er vart kominn inn í aðra viku desembermánaðar og hann er strax fallin á bloggloforði sínu. Lesendur hafa kannski tekið eftir skorti á bloggum þessa helgi og fyrir því er engin tæk afsökun. Haukurinn hafði öðrum hnöppum að hneppa og því gafst ekki tími til að dýfa sér í jólapælingar.
Haukurinn heldur samt sem áður ótrauður áfram og veltir í dag fyrir sér póstinum - þ.e. jólapóstinum. Nú eru víst að verða síðustu forvöð fyrir póstlagningu þeirra bréfa og pakka sem tryggilega skulu ná til móttakenda fyrir jól. Haukurinn er til dæmis allskostar tilbúinn með sinn póst, hvorki bréf né pakkar eru í þannig ástandi að hægt sé að koma þeim í hendur danska póstsins. Stefnan er sú að senda eitthvað af þessu af stað þegar unnustan hefur skilað sínu verkefni - ekki fyrr.
Heima hjá Hauknum tíðkast það ávallt að 'opna' jólapóstinn á aðfangadag eftir að pakkarnir hafa verið rifnir upp með offorsi. Haukurinn setur opnunina í minni gæsalappir, nánast andalappir eða -fit, þar eð pósturinn er einatt opnaður fyrirfram til þess að tryggt sé að bréfsendendur fái einnig bréf til baka. Því er um ákveðna simbólík að ræða, þ.e. táknræn athöfn sem þó á litla tengingu við raunveruleikann - lesendur eru beðnir að afsaka háfleygar tilvitnanir, því Haukurinn situr sem stendur og veltir fyrir sér allskonar óskiljanlegum, og í raun ónýtanlegum, hugtökum. En opnun jólakorta á aðfangadag er enn einn óaðskiljanlegur hluti jólanna sem veita öryggi og sálarfrið.
Oftar en ekki hefur aðfangadagur, að einhverju leyti, farið í það að sendast persónulega með kort og gjafir vítt um höfuðborgarsvæðið. Þetta hafa einkum verið pakkar og bréf sem Haukurinn hefur sluksað með að koma í hendur póstsins eða jafnvel ekki tímt að senda í bögglapósti. Að mörgu leyti er þetta mjög skemmtilegur og persónulega gefandi vani, en því miður fer hann ávallt fram í það miklum flýti sökum annarra anna að ekki gefst tími til að njóta ferðarinnar. Svo er því verr og miður sagan með margt um jólin. Við náum ekki að gefa okkur tíma til að njóta líðandi stundar sökum anna, og því situr maður oft eftir með þá tilfinningu að jólin séu búin áður en þau ná að byrja.
Haukurinn hefur ávallt tekið því heldur fálega þegar hann hefur heyrt ýmsa aðila tjá sig um nauðsyn þess að njóta einnig tíðarinnar fram að jólum. Hann hefur afskrifað slíkt sem lúxus þeirra sem annaðhvort eru nógu vel stæðir, tímanlega, fjárhagslega og annað, til að geta leyft sér að njóta jólatímans í heild eða bull í heimavinnandi einstaklingum sem eru að rembast við að fylla upp í daginn. Haukurinn hyggst reyna að snúa við sínu viðhorfi og reyna framvegis að njóta tíðarinnar. Því nú er jafnvel meiri þörf á því en áður. Reynum því að njóta tíðarinnar. Setjumst niður til jólakortaskrifa vegna þess að við kjósum það ekki af því að við þurfum það. Bökum smákökur af því að við viljum baka ekki af því að við 'eigum' að baka. Finnum okkar eigin jólavenjur og sníðum tímann eftir þeim.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Á fjórða degi jóla gaf kærastan mín mér...."
4.12.2008 | 13:11
Fjórfalt húrra fyrir styrkingu íslensku krónunnar þennan fjórða dag desembermánaðar. Hún stígur stöðugt og nær vonandi að yfirstíga verðgildi sitt sem skeinispappír fyrir dagslok. Haukurinn las einhversstaðar blogg þess efnis, að hækkunin væri tengt fyrirheitum Davíðs um að snúa aftur í pólitík. Haukurinn ætlar, að leyfa sér að efast um það og heldur fremur að því miður sé um tímabundna hækkun að ræða sem svo eigi eftir að snúast í lækkun innan skamms.
Eitt er það þó sem ekki fellur í verðgildi, en það eru jólavenjur hverrar einstakrar fjölskyldu í heiminum - sem þá aðhyllast kristna siði og/eða halda jól. Jólavenjur eru jafn mismunandi og afsakanir stjórnvalda tengdar fjármálakreppunni. Sumir borða rjúpu, aðrir hamborgarhrygg, og enn aðrir hangikjöt. Sumir velja norðmannsþin, aðrir rauðfuru, og enn aðrir tré gerð úr polycarbonate/acrylonitrile butadiene styrene (s.s. plasti). En það sem allar þessar mismunandi siðvenjur tengdar jólahaldi eiga sameiginlegt er að þær gera jólin sérstök - fyrir hvern og einn. Það, að enginn heldur sömu jól og hinir, veldur því að maður finnur fyrir sérstöðu eigin fjölskyldu og sínum eigin einstakleika. Ennfremur auka venjur á öryggi, sem er eitthvað sem flestir kannast við þegar nær dregur jólum. Þetta illlýsanlega öryggi sem maður finnur fyrir í eigin jólahaldi á aðfangadag.
Annað er vart hægt að segja en, að meira beri á gjaldeyrismálum fyrir þessi jól en oft áður. En þá er kannski mál að snúa við borðum og njóta þess öryggis sem jólahátíðin ber með sér. Markaðurinn má vera í uppnámi, það dregur enginn í efa, en við getum allavega notið þess að halda jól. Þau þurfa ekki að vera rándýr, aðeins að tryggja vellíðan. Njótið heil.
P.s. Davíð Oddson ætti kannski að snúa sér að veðurfræði líkt og frændi hans hjá norska ríkissjónvarpinu frekar en pólitík?
|
Krónan styrkist um 4% |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Sælla er að gefa en að þiggja...III"
3.12.2008 | 14:12
Það er hrikalega sorglegt að sjá hvernig erfitt efnahagsástand kemur ávallt verst niður á þeim sem standa verst fyrir. Fólk hreinlega fær aldrei möguleika til að ná sér upp úr gryfjunni. Það sem er eitt af því sárasta er sú staðreynd, að þetta er allskostar ekki nýtt ástand. Vaxandi fjöldi fólks hefur þurft, að sækja í góðgerðarstofnanir og -samtök til þess að eiga fyrir brýnustu nauðsynjum. Það þó ástandið hafi verið mun betra og þjóðin á pappírunum meðal ríkustu þjóðum heims.
Hreinast sagt þá er þetta skammarlegt.
En þar eð nú fer brátt í hönd jólatíðin, með öllum þeim góðgætum og gjöfum sem henni fylgir, þá er kannski kominn tími til að velta fyrir sér sjálfum anda jólanna. Ef einhvern tímann er þörf á því að hin kristnu og mannlegu gildi séu höfð í hávegum þá er það einmitt nú. Við stöndum höllum fæti, öllsömul, því hvert eitt og einasta mannsbarn á Íslandi á eftir að finna fyrir hinni yfirstandandi kreppu. Er því ekki mál að reyna að temja sér hófsemi, samkennd og gjafmildi þessi jólin? Er ekki þörf á því, að við hjálpumst að í auknum mæli næstu tíð - og þá einkum og sér í lagi reynum að tryggja hvert öðru mannsæmandi jól?
Haukurinn ætlar, að ríða á vaðið þessi jól - og hvetur þá sem lesa þessi skrif til að fylgja dæmi hans - með því að óska eftir því að þá sem langar að gefa honum jólagjöf leggi frekar andvirði gjafarinnar inn á reikning góðgerðasamtaka að þeirra eigin vali. Hér skiptir upphæðin engu máli. Það sem skiptir máli er hugurinn að baki. Við eigum allt sem okkur gæti vantað. Einn geisladiskur, bók eða leðurhanskar til eða frá skiptir ekki öllu máli. En það gæti verið þeim, sem vantar mat fyrir jólin eða eitthvað álíka, hreinlega nauðsynlegt.
Stjórnvöld hafa hvatt okkur til að standa saman, þó svo ástæður þeirra sem að baki liggja séu mögulega ádeiluverðar, þá er ákveðið sannleikskorn í því að við sem samfélag stöndum saman. Eftir fordæmalausa neyslu síðustu ára er kominn tími til að við lítum okkur nær og aðstoðum þá sem eru verst staddir.
Mildir, fræknir
menn best lifa,
sjaldan sút ala;
en ósnjallur maður
uggir hotvetna,
sýtir æ glöggur við gjöfum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það sem Haukurinn er að velta fyrir sér í dag eru jólatré. Fólk virðist hafa skiptar skoðanir um þetta tvöhundruð ára gamla tákn jólanna, grenitréð - sem virkar stundum furðulegt þar eð sonur smiðsins og hinnar hreinu meyjar bjó jú í miðausturlöndum þar sem fá grenitré finnast. Kannski með minnkandi kulda á norðurhveli, sökum gróðurhúsáhrifa, á siðvenjan eftir að þróast í áttina að því að fólk skreyti í framtíðinni jukkur eða pálmatré.
Jólatré eru ekki bara jólatr, hvert heimili virðist hafa sýna siðvenjuna tengt trjánum.Hérlendis (þ.e í Danmörku) tíðkast það í þó nokkru mæli, að dansa í kringum jólatréð á aðfangadag, sem er nokkuð sem Haukurinn hefur einkum tengt við stærri jólaskemmtanir, ekki jólahald í einkaheimilum. Einnig eru trén oftast skreytt með þjóðfánanum, Dannebrog, og einatt sett stjarna á toppinn. Haukurinn er sjálfur vanur risatrjám að hætti Griswold fjölskyldunnar, sem svo eru skreytt í hasti á Þorláksmessu. Unnustan hefur farið reglulega með fjölskyldunni út í skóg og þar sótt sitt tré. Sameiginlegt eigum við að trén eru ávallt skreytt með sama jólaskrautinu, þ.e. á okkar heimilum er haldið upp á jólaskraut og það varðveitt með mikilli fyrirhöfn. Haukurinn hefur þó heyrt út undan sér af heimilum þar sem jólatrénu er fleygt á haugana með öllu skrautinu á - en þó mætti ætla að slík hegðun verði á undanhaldi næstu ár. Hauknum hefur alltaf þótt þessi iðja mjög furðuleg, þ.e. það er eitthvað svo ótrúlega róandi við það að sjá sömu kúlurnar og skrautið á trénu. Vissulega hefur ljóskeðjulagerinn verið endurnýjaður yfir síðustu ár, en ljósaseríurnar sjálfar hafa kannski ekki heldur verið aðalatriðið, bara það að þær virki og kveiki enga elda.
Jólatré, líkt og allar afskornar jurtir og plöntur, eru í raun uppstoppaðar andvana lífverur - sem við reynum svo að halda lífi í rétt fram yfir í nýárið. Við sögum neðan af stofninum, dýfum honum í sjóðandi vatn, borum göt í hann og stífum hann svo af með skrúfum. Hljómar nánast eins og fangelsið við Guantanamoflóa. En allt skal gert til að halda trénu eins grænu og hægt er, sem og til þess að halda greninálunum föstum á greinum trésins. Sumir hverjir spreyja trén með ýmiskonar hárspreyjum og límgufum til þess að halda nálunum föstum, enda þarft verk, því helv..nálirnar eru óneitanlega vondar að fá inn í ilina.Samt sem áður, þó svo að við fögnum fæðingu frelsarans með því að stilla skreyttu líki upp í stofunni þá er erfitt að sjá fararsnið á trénu. Það er óneitanlega eitt af sterkustu táknum jólanna.
Haukurinn ætlar aukinheldur, að reyna að halda því við að birta eitt jólalag hvern dag á síðunni. Hér kemur því næsta framlag, Skrámur skrifar jólasveininum:
Texti:
Dagur 1. Kæri jólasveinn.
Þakka þér ofboðslega hrikalega innilega fyrir að senda mér þennan talandi páfugl og perutréð fyrir hann til að sitja í, hann beit mömmu soldið fast í hendina þegar hún ætlaði að fara að gefa honum að borða og það þurfti að sauma 3 spor en þau eru öll góðir vinir núna.
Þakka þér fyrir, virðingarfyllst
Skrámur
Dagur 2. Kæri Jóli
Ég get ekki útskýrt hvað við vorum hissa að heyra frá þér aftur og fá að gjöf 2 dúfur til viðbótar, þú ert svo góður. Í fyrstu var fuglinn eitthvað afbrýðisamur útí dúfurnar og þau slógust mjög mikið kvöldið sem dúfurnar komu, við urðum að senda eftir dýralækninum og reikningurinn var 350kr. Mamma er búin að jafna sig og dúfurnar og páfuglinn horfa saman á sjónvarpið úr perutrénu.
Þinn einlægur
Skrámur
Dagur 3. Kæri Jóli
Við hljótum að vera eftst í huga þér þessi jól, ég var rétt búinn að líma frímerkið á bréfið til þín þegar 3 frönsku hænsnin bárust til okkar, það kom upp smá misskilningur milli hænsnanna og dúfnanna þannig að við þurftum að senda aftur eftir dýralækninum og reikningurinn var 650kr í þetta skiptið. Mamma var nú soldið svekkt ég verð nú að segja það, af því að fuglarnir kúkuðu ofan á hausinn á henni þegar hún var að horfa á sjónvarpið, þá fauk nú soldið í hana sko.
Þakka þér vinsældina, þinn
Skrámur
Dagur 4. Kæri Jóli
Þú hlýtur ekki að hafa fengið bréfið frá mér fyrst þú sendir okkur 4 syngjandi þresti, það varð allt brjálað og reikningurinn frá dýralækninum var 1300kr. Og mamma er á róandi. Ég veit að þú vilt okkur vel
Þinn vinur
Skrámur
Dagur 5. Kæri Jóli
Ertu orðinn kolvitlaus maður? 5 gullhringir. Þegar pakkinn kom var ég skíthræddur um að það væru fleiri fuglar því að lyktin í stofunni er orðin ógeðsleg. En ég vil ekki vera vanþakklátur í þinn garð
Þinn Skrámur
Dagur 6. Jóli?
Hvað ertu að reyna að gera okkur eiginlega? Það er ekki það að við kunnum ekki að meta gjafmildina þína en þessar 6 gæsir sem þú sendir okkur voru næstum því búnar að gera útaf við syngjandi þrestina og svo verptu þær eggin sín ofan á hausinn á dýralækninum og reikningurinn var 2500kr fyrir utan söluskatt, mamma byrlar 60gr af róandi á dag og talar við sjálfa sig. Þú verður að skilja mig.
Skrámur
Dagur 7. Jóli?
Þetta er ekkert fyndið hjá þér lengur. 7 syndandi hvítir svanir. Það gæti svo sem verið ofsalega rómó í bíó en ekki í baðkerinu á lítilli íbúð. Við komumst ekki lengur á klóið því að svanirnir eru alveg trylltir og ráðast á hurðina í hvert skipti sem við reynum að komast inn, ef þetta heldur svona áfram þá förum við mamma að lykta jafnógeðslega og teppið í stofunni. Hættu að senda, þetta er ekki sanngjarnt.
Dagur 8. Jóli?
Hver gefur þér eiginlega leyfi til þess að senda okkur 8 feitar mjaltakonur? Mér er bara spurn. Ha og beljurnar þeirra ruddust inn í garðinn okkar og hafa eyðilagt öll rósabeðin hennar mömmu og svanirnir gerðu innrás á stofuna og átu hárkolluna hennar mömmu og hún drekkur núna eina viskí á dag með 60gr af róandi. Ég er mjög svekktur útí þig.
Dagur 9.
Hlustaðu nú ófétið þitt. Það er nóg af illum öndum hérna í húsinu dag og nótt án þess að þurfa að senda okkur 9 snaróða trommandi bumbuslagara. 8 feitu mjaltakonurnar eru búnar að reka aumingja mömmu út úr hennar eigin eldhúsi og borða allt sem tönn festir á. Ég vara þig við. Þinn óvinur
Skrámur
Dagur 10.
Heyrðu mig nú feitabollan þín, ég vona að þú verðir ofsóttur af þessum 10 flautandi flautuleikurum sem þú sendir okkur í gærkvöldi og í ofanálag eru þessir bumbuslagarar trommandi dag og nótt. Við mamma getum ekkert sofið og ekki bætti nú úr skák að 8 feitu mjaltakonurnar voru syngjandi og dansandi með þeim. Sko ég meina þetta sko þetta er too much. Þú skalt fá þetta borgað.
Dagur 11.
Þú er búinn að gera útaf við hana mömmu, heldurðu að það hafi ekki verið nógu slæmt fyrir hana að hlusta á flautuleikarana, bumbuslagarana og 8 feitu mjaltakellingarnar djöflast útí garði allan sólarhringinn og nú hafa vinir þínir 11 álfar stökkvandi bæst í hópinn. Ég skal finna þig í fjöru.
Dagur 12.
Þú ert búinn að leggja líf okkar í rúst. 12 dansandi meyjarnar komu í gærkvöldi og slógust við 8 feitu mjaltakonurnar því þær komu að þeim með 11 álfunum stökkvandi. Það voru 8 sjúkrabílar hérna í gærkvöldi, mamma er komin á hæli og ég sit hérna í fuglaskít og drasli upp fyrir haus. Ég og húsið erum bara rústir einar. Ég veit að þú ert svekktur útí mig fyrir síðar þarna um árið en bojóboj þetta er fullmikið og ég segi það enn einu sinni og stendi við það. JÓLA HVAÐ!!!
Bloggar | Breytt 3.12.2008 kl. 08:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)




Augnablik - sæki gögn...



